Velkomin(n) til Kílhraun í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Einstök náttúrufegurð
Landið er allt gróið og er það um 50 metra yfir sjávarmáli. Landið er flatlent með grónu hrauni
og er því frábært útsýni. Í miðju landsins er skógrækt Árnesingafélagsins,
með minnisvarða um Áshildarmýrarsamþykkt frá 1496. Lítill lækur liðast í gegnum
landið og kemur hann úr uppsprettum undan hrauninu. Á honum er hlaðin steinbrú frá
19 öld. Landið hentar einstaklega vel til trjáræktar og er rétt að benda á 15 ára
gamla skógrækt á landamörkunum í landi Merkurlautar, með yfir 6 metra háum trjám.
Stórar eignarlóðir fyrir frístundabyggð í landi Kílhrauns í Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Ægifagur fjallahringur blasir við af landinu sem er allt gróið og kjörið til áfram-haldandi
ræktunar. Byggja má allt að 200 fm hús á hverri lóð auk 25 fm geymslu eða gestahús.