Þú ert hér: Skip Navigation Links Staðsetning
Leiðin

Ekið er austur í gegnum Selfoss í um 10 mín og þá beygt til vinstri inn á þjóðveg nr. 30. Þaðan er ekið í um 3 mínútur að Áshildarmýri og þá blasir auglýsinga-skilti við á vinstri hönd.

Selfoss 19 km
Brautarholt 7 km
Flúðir 25 km
Laugarás 21 km

Frábær staðsetning

Kílhraun er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, einungis um 65 km frá Reykjavík. Frístundabyggðin er skammt frá Selfossi og í næsta nágrenni við margar af helstu náttúruperlum landsins s.s. Þingvelli, Laugarvatn, Kerið, Gullfoss og Geysi. Fjölbreytt afþreying er í boði í nágrenni svæðisins og má þar nefna golfvelli, sundlaugar, veiðisvæði, en alla þjónustu má nálgast á Selfossi sem er aðeins í 13 mín. fjarlægð frá svæðinu.

Öll aðstaða í boði

Á svæðinu í í heild hafa verið skipulagðar 72 frístundalóðir frá 5.000 fm til 11.600 fm að stærð og eru þær allar eignarlóðir. Vegir eru komnir að lóðamörkum og landið allt afgirt. Á svæðinu er aðgangur að rafmagni, köldu vatni og háhraða internet tengingu.
Hannað af Tölvugeira